Thursday, October 07, 2004

HASH(0x8938db0)
You're the color blue. You have the three c's in
life--you're cool, caring and confident.
Trustworthy and honest, people are naturally
attracted to you. You're unusually optimistic,
but that makes life all the better. You're an
imaginative person who loves sleeping and
dreaming. Hard-working and determined, you
excell in school. You're everybody's favorite,
and this is because you have this undefined
richness in your personality and attitude.
Mild-tempered and stable. Not to mention very
intelligent. Along with the fact that you're
conservative, you're worried about the
environment. So basically, you're a generous,
dependable and devoted--just the kind of person
everybody needs. Wouldn't it be great if
everybody in the world were like you?


What color are you? (Amazingly detailed & accurate--with pics!)
brought to you by Quizilla

Tuesday, August 31, 2004

Alltaf gaman að taka svona persónuleikapróf.

Morpheus
Morpheus


// posted by Dagbjört @ 3:37 AM

Monday, August 30, 2004

Morpheus
Morpheus


// posted by Dagbjört @ 8:40 AM

Tuesday, August 24, 2004

Jæja nú er ÓL 2004 í fullum gangi og Íslendingar graut fúlir út í handboltalandsliðið. Óli Sef. að hætta og allt í volli. En lítum nú á þetta í víðara samhengi.

Okkur finnst árangur þeirra sem að keptu í sundi bara fínn, ég meina 38 sæti af 45 er bara nokkuð gott á Ólimpíu leikum er það ekki? Svo ekki sé minnst á hann Rúnar Alexandersson, hina nýju hetju okkar sem að leti í 7 sæti og allir bara að springa úr þjóðernisrembu.

En landsliðinu í handbolta verður sko ekki fyrirgefið að hafa dregið íslenska fánann og já alla íslendinga niður í svaðið með sér.

Ég held að það sé tími til komin að íslendingar taki þumalinn úr rasgatinu á sér og tappi smá lofti af. Erum við í alvöru búin að gleyma því að við erum eina norðurlandaþjóðin sem tók þátt í handbolta keppnini á ÓL. Guðmundur þjálfari hefur verið harðlega gagngrýndur fyrir að skilja nokkrar hörkuskyttur eftir heima og taka gamalreynda leikmenn með sem að hafa ekki náð sér a stirk. Ef að Guðmundur hefði nú hlustað á okkur hin heima í sófa þá hefðum við séð fram á Ísland að minnstakosti spila um bronsið. En hvað ef Guðmundur hefði nú tekið þessa gutta með og ekkert hefið farið á annan veg þá væir búið að krossfesta mannin fyrir að skilja svona reynsluríka leikmenn heima og taka óharðnaða stráklinga með sem gátu ekki staðið undir pressunni.

Maður á ekki bara að vera stuðningsmaður þegar að vel gengur. Ég held að einmitt þegar að illa gengur þurfið að peppa það upp með stuðningi en ekki baula og drulla yfir allt og alla.
// posted by Dagbjört @ 5:08 AM

Wednesday, August 18, 2004

Jæja gat ekki staðist það að tjá mig um hina úrvals dagskrá sem að RUV hefur upp á að bjóða. Það veitir mér óneitanlega mikla ró að hugsa til þess að þessi skildu afnotagjöld sem að við neyðumst til að borga fari í svona svakalega frábæra dagskrá eins og raun ber vitni.

Tilefni þessara hugrenninga hjá mér er sem sé hin svaka spennandi dagsrká sem boðið var upp á í gærkveldi. Á svokölluðum primetime bauð þessi ríkisfjölmiðill upp á sannkallað útvarpsefni eða heimildarmynd um bókasöfn fyrr og nú. Ég verð að játa að ég gaf mér nú ekki tíma til að horfa á þennann ótrúlega menningarviðburð, heldur fór ég og nýtti mér þjónustu myndbandaleigu í nágreninu. En ég efa ekki að allmargir bókasafnsfræðingar hafi setið mjög spenntir í gærkveldi og hefur morgunkaffið hjá þeim í morgun eflaust innihaldið fjörugar umræður um heimildarmynd þessa.

Niðurstaðan er því þessi:
Í hvern andskotan er verið að eyða peningum okkar skattborgaranna?
// posted by Dagbjört @ 1:45 PM

Sunday, March 28, 2004

Jæja úpps hef ekki bloggað í 2 daga. Reyni að bæta það upp hér.

Þá er kominn sunnudagur. Hjónaball á skeiðunum í gær. Rosalega góður matur og skemmtiatriðin ferlega skemmtileg og ótrúlegt þá náði ég þeim flestum. Hitti fult af gömlum félögum og spjallaði mikið.

Frændi minn sem ræktar dúfur varð fyrir heldur leiðinlegri reynslu um á föstudaginn. Það komst minkur í dúfurnar og drap 70 stk. Minkurinn staflaði þeim upp í nokkra bunka 10 í hverjum. Hundurinn hans hún Evíta (kölluð víta mín!!!) fann varginn og Matti náði að skjóta hann. Hörku spenna í sveitinni.
// posted by Dagbjört @ 3:55 AM

Thursday, March 25, 2004

jæja kæru allir. Hélt áfram að tússa í dag. Það er svo sterk stækja af þessum túss að maginn á mér er í rusli. Annars frekar viðburðasnauður dagur. Reynar erum við að fara að gera svolítið skemmtilegt á eftir en það er leindó...

En eitt skemmtilegt! Við ætlum að fara á sveitaball í sveitinni minni. Það verður rosa stuð því að á þetta ball koma allir. Ég hef ekki farið í mörg ár svo að þetta verður áræðanlega frábært. Spurning um að fara með hattinn (Cat in the hat) ;o)
// posted by Dagbjört @ 8:54 AM

This page is powered by Blogger. Isn't yours?